Fara í efni

Hópur frá Newtown School á Írlandi í heimsókn í VMA

Nemendurnir tólf frá Newtown School á Írlandi sem hafa verið í heimsókn í VMA þessa viku.
Nemendurnir tólf frá Newtown School á Írlandi sem hafa verið í heimsókn í VMA þessa viku.

Þessa viku eru í VMA tólf nemendur (15-17 ára) og fjórir kennarar frá Newtown School í Waterford á Írlandi. Á undanförnum tveimur árum hefur komist á afar farsælt samstarf VMA við þennan skóla á Írlandi með tilstyrk Erasmus+ og hafa bæði nemendur og kennarar úr VMA farið í heimsókn í Newtown. Aðaláhersla írska hópsins sem nú er í heimsókn í VMA er á íslenska menningu, jarðfræði og jarðvarma.

Síðastliðinn þriðjudag fékk hópurinn kynningu á VMA og félagslífinu í skólanum, lærði að dansa skottís og fór í FabLab. Einnig hefur verið á dagskránni eitt og annað um huldufólk, skapandi skrif o.fl. Í gær lá leiðin í Mývatnssveit þar sem hópurinn fékk m.a. fræðslu um hvernig jarðvarminn nýtist fyrir íbúa sveitarinnar. Í dag liggur leiðin m.a. í Jólahúsið í Eyjafjarðarsveit og síðan í Saurbæjarkirkju þar sem Níels Kristinn Ómarsson, útskrifaður sjúkraliði frá VMA, tekur á móti hópnum og segir frá rímnahefð Íslendinga og kveður rímur. Til undirbúnings fyrir ferðina í dag hefur hópurinn kynnt sér íslensku jólin og ýmsa jólasiði og -hefðir.

Punkturinn yfir i-ið á morgun verður síðan rammíslenskur pönnukökubakstur.