VMA-hópur til Waterford - hópur frá Waterford til Akureyrar
Í síðasta mánuði, nánar tiltekið dagana 18.-25. apríl sl., fór fimmtán manna hópur úr íslenskudeild VMA, tólf nemendur og kennararnir Snorri Björnsson, Bergur Tómasson og Sigíður Diljá Vagnsdóttir, í heimsókn til Írlands. Ferðinni var heitið til borgarinnar Waterford, í tæplega þriggja klukkustunda akstursfjarlægð suður af Dublin. Ferðin var styrkt af Erasmus+ menntaáætlun ESB.
Komist hafði á gott samband VMA við Newtown School í Waterford, m.a. hafði Dagný Hulda Valbergsdóttir, sem sér um erlend samskipti í VMA, farið til Waterford og lagt með kennurum þar ytra drög að dagskrá fyrir ferð VMA-hópsins út í apríl.
Flogið var með Easy Jet til London og áfram til Dublin og var gist þar og m.a. farið á söfn. Hópurinn fór í rútu suður til Waterford. Borgin er afar rík af sögu, enda elsta borg Írlands, og sagan fer ekki fram hjá þeim sem þangað koma, það má m.a. sjá í gömlum byggingum og eitt og annað minnir á víkingatímann. Waterford er fimmta fjölmennasta borg Írlands, þar búa um sextíu þúsund manns.
Newtown School, sem VMA-hópurinn heimsótti, er um margt frábrugðinn VMA. Þar er fyrst og fremst bóknám með fjölbreyttu ívafi. Og þó svo að Newtown sé einnig framhaldsskóli er aldur nemenda annar en í VMA, eða 12-18 ára, enda er uppbygging skólakerfisins á Írlandi önnur en hér. Heildarfjöldi nemenda í Newtown er um 600 og eru þeir sex ár í skólanum.
Snorri Björnsson kennari segir að í grunninn hafi áherslan í ferðinni verið að fara á slóðir frænda vorra á Írlandi og leita uppruna okkar. Írar eru vissulega náskyldir okkur Íslendingum enda er vitað að nokkrir af þeim norrænu mönnum sem lögðu leið sína til Íslands við upphaf landnáms komu frá Írlandi. Snorri segir að leitin að upprunanum hafi verið meginstefið í ferðinni og jafnframt að kynnast írskri menningu. Hópurinn fékk innsýn í skólastarfið í Newtown og reyndu fyrir sér í einu og öðru, m.a. í írskum dansi og einnig fékk hópurinn kynningu á írskum fótbolta, sem er drjúgt mikið frábrugðinn klassískum fótbolta sem við þekkjum. Írar eru reyndar öflugir í báðum afbrigðum knattspyrnunnar, í þeirri klassísku voru þeir ansi nálægt því að tryggja sér farseðilinn á heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum næsta sumar undir stjórn landsliðsþjálfarans Heimis Hallgrímssonar. Einnig fór VMA-hópurinn á söfn í Waterford og kynnti sér samfélagið á ýmsan hátt. Þá var einn daginn farið niður að sjó, í um 20 mínútna akstursfjarlægð, og genginn dágóður spölur við Dunmore Cliff.
Snorri segir að ferðin hafi tekist ljómandi vel. Írarnir hafi tekið afskaplega vel á móti hópnum og nemendur verið virkir og duglegir að taka þátt og spyrja.
Flogið var aftur heim til Akureyrar 18. apríl sl. með Easy Jet frá London og með í för var hópur, nemendur og kennarar, frá Newtown skólanum sem dvaldist á Akureyri í síðustu viku. Ferð Íranna til Akureyrar var einnig styrkt af Erasmus+. Fyrst og fremst var Newtown-hópurinn í VMA og kynnti sér eitt og annað í skólastarfinu. Í ljósi þess að okkar fólk fékk að reyna sig í hinum þjóðlega írska dansi í Waterford var efnt til kennslu í gömlu dönsunum í Gryfjunni og reyndu frændur okkar frá Írlandi fyrir sér í skottís. Einnig fékk hópurinn að spreyta sig í pönnukökubakstri. En ekki aðeins voru hinir írsku gestir í VMA, sunnudaginn 19. apríl var farið í náttúruskoðunarferð að Goðafossi, í Mývatnssveit - Dimmuborgir, Grjótagjá og Námaskarð - og austur að Dettifossi. Þessar myndir voru teknar í þeirri ferð, á einni mynd eru Írarnir í íslenskum lopapeysum.