Hendur í hári meistara
Nemendur á fjórðu önn í hársnyrtiiðn feta sig áfram stig af stigi í náminu og glíma við flóknari viðfangsefni eftir því sem líður á námið. Á þessari önn gefst þeim kostur á að vinna með módel til að klippa, hárlita eða annað samkvæmt kúnstarinnar reglum. Æfingin skapar meistarann og slíkar kennslustundir eru endurteknar aftur og aftur enda margt sem þarf að læra og tileinka sér. Í gær nutu nemendur aðstoðar fólks sem kom í stólana hjá þeim til þess að þeir gætu æft sig í litun á stuttu hári. Stundum hleypur starfsfólk VMA í skarðið ef vantar módel og það gerði t.d. Benedikt skólameistari í gær, eins og sjá má á meðf. mynd. Hár hans var auðvitað meðhöndlað af fagmennsku og samkvæmt öllum stöðlum og yfirgaf meistari stólinn með gloss í hárinu.
Sem fyrr segir eru þessir nemendur nú á fjórðu önn en í það heila tekur námið sex annir eða þrjú ár. Það þýðir að þessi níu nemenda hópur stefnir á að ljúka námi sínu að rúmu ári liðnu og útskrifast í lok haustannar 2027.