HLIT2FB03D - Hárlitun 4
Undanfari : HLIT2GB01C
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn öðlast færni í hárlitun og ýmsum aðferðum í litatækni auk þess sem þjálfaður er hraði og vandvirkni. Hann lærir að meta hlutfall af gráu hári og hvað þarf til að þekja það 100%. Unnið er með heillitun, partalitun, rótalitun og ýmsar tegundir af strípulitunum. Skilningur á notkun mismunandi styrkleika lita er aukinn. Forlitun kynnt. Nemendur læra að skoða litaraft viðskipavina, bæði dömu og herra. Þjálfuð er verklýsinga- og spjaldskrárgerð og notkun litarspjalda. Unnið er með æfingarhöfuð og módel.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsum hugtökum sem tengjast hárlitun.
- hvernig meta skal hlutfall af gráu hári.
- mismunandi aðferðum og útfærslum við hárlitun.
- ólíkum gerðum hárlita, notkun og umgengni við þá.
- hvenær skal notast við forlitun.
- umgengni og frágangi vinnustöðva.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lita dömu og herra æfingarhöfuð og módel út frá eigin verklýsingu.
- lita módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið.
- greina náttúrulit og hlutfall grárra hára viðskiptavinar.
- blanda og bera í hárlit.
- nota litaspjald sem hjálpartæki.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita mismunandi útfærslum við hárlitun.
- gera strípur og mismunandi partalitanir.
- geta litað innan ákveðinna timamarka.
- ráðleggja um val á hárlit.
- gera verklýsingu og spjaldskrá fyrir viðskiptavin.
- ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
Símat.