Fara í efni

Haustönn 2020 - töflubreytingar í Innu

Opið verður fyrir óskir um töflubreytingar í INNU frá föstudeginum
14. ágúst kl. 16 til hádegis mánudaginn 24. ágúst . 

Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel leiðbeiningar um töflubreytingar sem eru á heimasíðu skólans.

Nemendur, þar með talin útskriftarefni, hafi samband við sinn sviðsstjóra eða námsráðgjafa í gegnum tölvupóst eða síma 4640300 ef ráðgjafar er þörf.

 

Eftirfarandi þarf að hafa í huga:

 

- beiðnir um töflubreytingar sem byggðar eru á vina- eða kennaranótum verða líkast til ekki samþykktar nema mjög góðar ástæður liggi að baki.

- ef nemandi er með 36 tíma í töflu eða meira, er ólíklegt að beiðni um viðbót í töflu verði samþykkt.

- nemendur verða að fylgjast með stundatöflunum sínum í INNU til þess að sjá hvort breytingar hafa verið samþykktar eða ekki.

- Rafrænar beiðnir eru afgreiddar daglega.

- Ekki velja hópa sem eru ekki í töflu 

 

Stokkakerfi

Leiðbeiningar

Áfangar í stokkum

Sviðsstjórar:

Baldvin Ringsted, sviðsstjóri verk- og fjarnáms (baldvin@vma.is)

Ómar Kristinsson, sviðsstjóri stúdentsprófsbrauta (omar@vma.is)

Harpa Jörundardóttir, sviðsstjóri brautabrúar og starfsbrautar (harpa@vma.is)

Námsráðgjafar:

Helga Júlíusdóttir (helgajul@vma.is)

Svava Hrönn Magnúsdóttir (svava@vma.is)