Fara í efni

Glímt við grænmetissúpuna

Stund á milli verkefna í matreiðslu dagsins!
Stund á milli verkefna í matreiðslu dagsins!

Til þess að verða matreiðslumaður, bakari, þjónn eða kjötiðnarmaður þarf fyrst að ljúka námi í grunndeild matvæla- og ferðagreina, sem tekur tvær annir.

Núna á haustönn hófu hátt í þrjátíu nemendur nám á brautinni og er námið bæði bóklegt og verklegt. Í verklega hlutanum er nemendum skipt í hópa sem fá kennslu í ýmsu er lýtur að framreiðslu, matreiðslu og bakstri. Það er því víða komið við og nemendur fá góða sýn á þessar starfsgreinar, sem hreinlega kallar á fleira starfsfólk. Með öðrum orðum er mikill skortur á fagfólki í þessum greinum og því er mikilvægt að fullmennta fólk á þessu sviði. Í vetur verður í VMA, auk grunndeildarinnar, bæði boðið upp á matreiðslunám og framreiðslunám. Nánar um það síðar hér á heimasíðunni.

Þegar litið var inn í verklegan tíma í grunndeild matvæla- og ferðagreina í VMA voru nemendur í tveimur hópum, annar var að læra að elda grænmetissúpu og baka brauð með súpunni hjá Ara Hallgrímssyni en hinn hópurinn lærði ýmislegt í framreiðslu hjá Eddu Björk Kristinsdóttur, að blanda drykki, leggja á borð, brjóta servíettur o.fl.