Gleði og gaman á Hólavatni
26.08.2026
Þetta er vika nýnemanna í skólanum. Í gær var fyrri nemendaferðin á Hólavatn í Eyjafjarðarsveit og sú síðari verður í dag. Vikunni lýkur síðan með Sprengjunni 2026 í Sjallanum nk. föstudagskvöld.
Eins og vera ber var gleðin við völd á Hólavatni í gær þar sem nemendur og starfsmenn áttu saman skemmtilegar stundir í hinum ýmsu leikjum og þrautum. Veðurguðirnir voru í sólskinsskapi á Hólavatni í gær og þeir verða það örugglega einnig í dag því jafnan er hið prýðilegasta veður þegar farið er í nýnemaferðir VMA.
Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar á Hólavatni í gær.