Fara í efni

Sprengjan 2026 í Sjallanum 28. ágúst

Sprengjan 2026 verður í Sjallanum nk. föstudagskvöld kl. 22.
Sprengjan 2026 verður í Sjallanum nk. föstudagskvöld kl. 22.

Í kjölfarið á nýnemaferðunum í dag og á morgun stendur nemendafélagið Þórduna fyrir balli í Sjallanum nk. föstudag, 28. ágúst, kl. 22:00 sem ber yfirskriftina Sprengjan 2026.

Fram koma Daniil, Séra Bjössi, JóiPé & Króli og Háski.

Miðar eru seldir í forsölu á 4000 kr., hægt er að kaupa miða með því að skanna QR-kóðann á myndinni hér til hægri. Forsala verður til kl. 12:00 föstudaginn 28. ágúst. Þórduna verður með forsölu aðgöngumiða sama dag í löngu frímínútunum fyrir framan Þórdunuherbergið í Gryfjunni. Einnig verða miðar seldir við innganginn í Sjallanum og þar kosta þeir kr. 5000.

Allir framhaldsskólanemar eru velkomnir á Sprengjuna 2026. Rétt er að undirstrika að ballið er vímulaus skemmtun og ölvun ógildir aðgöngumiðann.