Fara í efni

Fjölgun nemenda með erlent ríkisfang

Á síðustu árum hefur verið hröð fjölgun fólks af erlendum uppruna á Íslandi og að sama skapi hefur fjölgað í VMA nemendum með erlent ríkisfang. Núna á haustönn eru þeir um sjötíu eða rúmlega 6% af heildarfjölda nemenda í dagskóla.

Samkvæmt tölum Þjóðskrár í júlí sl. sumar voru rösklega sjötíu þúsund erlendir ríkisborgarar með búsetu hér á landi og hafði fjölgað um tæplega sex þúsund frá 1. desember á síðasta ári eða 8,9%. Þar af voru úkraínskir ríkisborgarar á Íslandi um 3.200 og hafði fjölgað um 43% frá 1. desember 2022. En eftir sem áður eru Pólverjar lang fjölmennastir þeirra sem hafa erlent ríkisfang. Þann 1. júlí voru þeir um 25 þúsund eða um 35% allra erlendra ríkisborgara á Íslandi.

Eftir því sem næst verður komist eru nemendur í VMA núna á haustönn af 24 þjóðernum. Langflestir koma frá Evrópu en einnig eru nemendur frá Mið-Ameríku, Suður-Ameríku, Asíu og Afríku. Í takti við þann fjölda Pólverja sem býr á Íslandi eru nemendur sem hafa pólskt ríkisfang lang fjölmennastir nemenda í VMA af erlendum uppruna eða rösklega 40%.

Vert er að geta þess að í VMA er unnið samkvæmt sérstakri móttökuáætlun þegar nemendur af erlendum uppruna hefja nám í skólanu. Sjá hér.