Fara í efni

Níundi matartæknihópur Marínu

Þau útskrifast sem matartæknar frá VMA þann 19. desember nk.  Mynd: Marína Sigurgeirsdóttir.
Þau útskrifast sem matartæknar frá VMA þann 19. desember nk. Mynd: Marína Sigurgeirsdóttir.

Í næsta mánuði útskrifast níundi hópur matartækna sem Marína Sigurgeirsdóttir, kennari við matvælabraut VMA, hefur kennt og haft yfirumsjón með. Þetta verður jafnframt síðasti nemendahópurinn í matartækni sem Marína kennir því hún mun setja punktinn yfir i-ið á sínum farsæla kennsluferli núna í lok haustannar.

Marína hóf kennslu við matvælabraut VMA árið 2002 og hefur því kennt við skólann í tæpan aldarfjórðung. Jafnframt því að kenna við brautina var hún til margra ára brautarstjóri. Hér er viðtal við Marínu sem birtist á heimasíðu skólans árið 2014.

Matartækninámið hefur verið á könnu Marínu í tæpa tvo áratugi, frá árinu 2007. Fyrsti nemendahópurinn sem hún kenndi matartækni lauk náminu 2008 og í desemberútskriftinni 2026 fylgir hún til loka níunda hópnum sem hún hefur kennt

Sem fyrr hefur matartækninámið verið þriggja anna nám, á hverri önn eru 4-5 helgarstaðlotur en á milli eru unnin verkefni í fjarnámi. Þeir þrettán nemendur sem nú eru að ljúka námi sínu koma víðsvegar að, frá Suðureyri við Súgandafjörð í vestri og austur í Mývatnssveit, og hafa margir þeirra farið í gegnum raunfærnimat til þess að fá metna reynslu sína og kunnáttu í faginu. Flestir nemendur í matartæknináminu hafa lengi starfað í matvælageiranum, m.a. í skóla- og fyrirtækjamötuneytum. Námið er víðtækt og afar gagnlegt fólki sem hefur lengi unnið við að elda og/eða meðhöndla matvæli. Náminu lýkur með verklegu fagprófi og að brautskráningu lokinni fá útskrifaðir matartæknar leyfisbréf sem landlæknisembættið gefur út.

Þrátt fyrir að Marína Sigurgeirsdóttir láti af störfum um áramót verður matartækninámið áfram í boði í VMA, sem er afar mikilvægt því auk VMA er það einungis kennt við matvælabraut Menntaskólans í Kópavogi.

Þessi hópur útskrifaðist úr matartæknináminu í VMA í maí 2025.

Hér er viðtal við Önnu Björk Ívarsdóttur sem lauk matartæknináminu í VMA í desember 2022.