Fara í efni

Bernharð S. Haraldsson, fyrrv. skólameistari VMA, látinn

Bernharð S. Haraldsson (1939-2025), fyrsti skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri.
Bernharð S. Haraldsson (1939-2025), fyrsti skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri.

Bern­h­arð S. Har­alds­son, fyrsti skóla­meist­ari VMA, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 20. maí sl., 86 ára að aldri.

Bern­h­arð fædd­ist í Árnesi í Gler­árþorpi 1. fe­brú­ar 1939 og ólst upp á Ak­ur­eyri. For­eldr­ar hans voru Þór­björg Sig­ur­steins­dótt­ir, hús­freyja og verka­kona, ættuð úr Hörgár­dal, og Har­ald­ur Norðfjörð Ólafs­son frá Brekku í Gler­árþorpi, sjó­maður og neta­gerðarmaður.

Stúdentsprófi lauk Bernharð frá MA árið 1959 og nam síðan þýsku við há­skól­ann í Frei­burg í Vestur-Þýskalandi 1959-1960. BA-prófi í landa­fræði og mann­kyns­sögu og prófi í upp­eld­is- og kennslu­fræði frá Háskóla Íslands lauk hann árið 1966 og stundaði nám í hagrænni landa­fræði við Kaup­manna­hafnarháskóla vet­ur­inn 1988-1989.

Við Gagn­fræðaskóla Vest­ur­bæj­ar kenndi Bernharð 1966-1967, Gagn­fræðaskóla Ak­ur­eyr­ar 1960-1962 og 1967-1981 og var yfirkennari þar 1981-1982 og skóla­stjóri 1982-1983.

Bernharð var skipaður skólameistari Verkmenntskólans á Akureyri 1. júní 1983 en hann var formlega stofnaður ári síðar, 1. júní 1984, og settur í fyrsta skipti 1. september það ár. Bernharð vann öt­ul­lega að stofn­un hins nýja skóla og upp­bygg­ingu verk­mennt­un­ar á Ak­ur­eyri. Und­ir stjórn Bern­h­arðs og með fulltingi Hauks Ágústs­son­ar og Adams Óskars­son­ar var VMA frum­kvöðull í fjar­kennslu. Bernharð gegndi embætti skólameistara til 1999.

Í viðtali við Bernharð sem birtist hér á heimasíðu VMA 3. janúar 2020 fór hann yfir eitt og annað í sínu lífshlaupi og ræddi um aðdraganda að stofnun VMA og starf sitt sem fyrsti skólameistari VMA.

Efnt var til 40 ára afmælishófs í VMA 30. ágúst 2024 og þar var Bernharð ásamt öllum hinum fimm sem hafa gegnt starfi skólameistara VMA um lengri eða skemmri tíma.

Bern­h­arð var mikill skólamaður og ritaði tvær bæk­ur um skóla­sögu, önnur þeirra fjallaði um sögu verkmenntunar við Eyjafjörð. Í þeirri bók rekur Bernharð í máli og myndum aðdraganda að stofnun VMA, lýsir framkvæmdum við byggingu skólahúsnæðis VMA og fyrstu árununum í starfi skólans. Þessi bók er ítarlegasta og besta heimildin sem til er um þennan kafla í sögu Verkmenntaskólans á Akureyri.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Bern­h­arðs er Ragn­heiður Hans­dótt­ir, tann­lækn­ir og sér­fræðing­ur í bit­lækn­ing­um. Þau gengu í hjóna­band 1966 og eignuðust fjög­ur börn: Har­ald, Hans Braga, Arn­dísi og Þór­dísi. Barna­börn­in eru sjö og það átt­unda er á leiðinni.

Minningarathöfn verður haldin í Bústaðakirkju 10. júní nk. klukkan 13. Útför Bernharðs fer fram frá Akureyrarkirkju 13. júní nk. kl. 13.

Verkmenntaskólinn á Akureyri þakkar öll þau góðu störf sem Bernharð vann í þágu skólans og minnist hans sem frumkvöðuls og forustumanns við stofnun og mótun Verkmenntaskólans á Akureyri fyrir rúmum fjörutíu árum. Einlægar samúðarkveðjur sendir skólinn eftirlifandi eiginkonu hans, börnum og öðrum ástvinum. Blessuð sé minning Bernharðs S. Haraldssonar.