Beiðni um brautaskipti
23.02.2026
Nemendum stendur til boða að sækja um brautaskipti í Innu 23. - 27. febrúar. Vinsamlegast athugið að ef brautaskiptabeiðni er send inn þá geta þeir nemendur ekki valið áfanga á námsvalstímbili (9. - 17. mars). Sviðsstjórar munu sjá til þess að áfangar verði settir í námsferil ef brautskiptabeiðni er samþykkt. Ef brautaskiptabeiðni er ekki samþykkt þá verður haft samband við nemanda til að ræða framhaldið.
ATH! Í einhverjum tilvikum er afgreiðslu brautaskiptabeiðna frestað þar til ljóst er hvort ástundun og námsárangur uppfyllir inntökuskilyrði brautar sem sótt er um.