Fara í efni

Austurlenskt er þema dagsins

Hér eru bökuð Naan brauð.
Hér eru bökuð Naan brauð.

Nemendur í grunndeild matvæla- og ferðagreina byggja smám saman upp þekkingar- og reynslubanka. Æfingin skapar meistarann og fá nemendur fá alltaf að glíma við eitthvað nýtt. Þrisvar í viku er verkleg kennsla og er grunndeildarkrökkunum skipt í þrjá hópa, tveir þeirra eru í eldhúsinu með kennurunum Ara Hallgrímssyni og Marínu Sigurgeirsdóttur og þriði hópurinn er í borðsalnum og meðtekur þar boðskap Eddu Bjarkar Kristinsdóttur um allt mögulegt er lýtur að framreiðslu matar, að leggja á borð eftir kúnstarinnar reglum o.fl. 

Þegar litið var inn í verklegan tíma í liðinni viku var vel unnið á öllum vígstöðvum. Þema dagsins var austurlenskur matur; m.a. svínakjötspottréttur, núðluréttur, nautakjötsstrimlar og meðlæti var m.a. nýbökuð naan brauð og gúrku raita.

Grunndeild matvæla gefur nemendum gott og hagnýtt nám, hvort sem þeir kjósa að halda áfram í þeim greinum sem námið er grunnur að, matreiðsla, bakstur, framreiðsla, kjötiðn eða matartækni, eða eru bara að læra fyrir lífið sjálft. Allir þurfa jú að elda fyrir sig og sína og þá kemur sér vel að hafa farið í gegnum tveggja anna grunnnám í VMA. Nemendurnir sem hófu nám sitt í upphafi þessa skólaárs halda áfram eftir áramót og ljúka grunndeildinni næsta vor.

Í námi eins og í grunndeild matvæla eru snertifletirnir vissulega margir. Ætla mætti því að á tímum covid þurfi að fara sérstaklega gætilega og passa upp á hlutina. Ari brautarstjóri Hallgrímsson segir að það sé vissulega rétt en hreinlæti sé eitt af fyrstu og mikilvægustu boðorðunum sem nemendur læri í náminu á matvælabraut og því þurfi þeir frá fyrsta degi að tileinka sér strangar hreinlætis- og heilbrigðiskröfur - óháð því hvort covid heimsfaraldur er í gangi eða ekki.