Fara í efni

Arkitektar VMA hlutu Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar 2026

Feðgarnir Geirharður Þorsteinsson og Þorsteinn Geirharðsson hlutu Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæ…
Feðgarnir Geirharður Þorsteinsson og Þorsteinn Geirharðsson hlutu Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar 2026 fyrir hönnun húsa Verkmenntaskólans á Akureyri. Þessa mynd tók Hilmar Friðjónsson að haustlagi af húsum VMA.

Á árlegri Vorkomu Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta var tilkynnt að feðgarnir og arkitektarnir Geirharður Þorsteinsson og Þorsteinn Geirharðsson hafi hlotið Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar fyrir 2026 fyrir hönnun húsa VMA. Meginrök faghóps fyrir þessari útnefningu eru að í húsunum sé rík næmni fyrir fegurð einfaldleikans og skilningur fyrir formun hússins fyrir starfsemi verk- og bóknáms.

Geirharður Þorsteinsson lést árið 2017 en Þorsteinn Geirharðsson sonur hans var fjarverandi í gær. Benedikt Barðason skólameistari VMA veitti viðurkenningunni viðtöku.

Í janúar 2023 kom Þorsteinn Geirharðsson í VMA með ýmis gögn sem tengjast hönnun húsa skólans í gegnum tíðina og eru þau nú varðveitt í skólanum. Af því tilefni birtist viðtal við Þorstein hér á heimasíðunni. Þar segir hann m.a.:

Ég er mjög ánægður fyrir pabba hönd og sjálfs mín og er stoltur af þessari byggingu. Í gegnum tíðina hef ég fengið mjög jákvæð viðbrögð um þessi húsakynni frá nemendum sem hafa verið hér. Ég tel að almennt megi segja að það hafi verið mikil natni í hönnun og öllum frágangi við húsið. Það eru margar og skemmtilegar efnisáferðir og litir í húsinu. Fólki finnst byggingin margbreytileg og hún vekur sterkar minningar fólks.
Verkmenntaskólinn var stærsta verk pabba, hans stóra verkefni. Hann teiknaði reyndar ekki allt húsið því ég tók við verkinu þegar ráðist var í að byggja sjötta áfanga af tíu. Ég hélt áfram með húsið í sama anda og pabbi hafði lagt línur með. Hann og hans samstarfsmenn höfðu lagt grunninn í fyrstu áföngum hússins.

Ég þori ekki að segja hver var grunnhugmynd föður míns við hönnun hússins og útlit þess en ég veit að það var mikill metnaður hjá honum og öllum þeim sem að þessu verki komu í upphafi, þar með talið byggingarnefndinni. Meðal annars var farið til Danmerkur til þess að kynna sér og sjá ýmis framhaldsskólahús og ég veit að pabbi og nefndarmenn voru undir miklum áhrifum af því sem fyrir augu bar í Danmörku. Það sem vekur nokkra athygli, í samanburði við marga framhaldsskóla, er að það var ákveðið að skólinn skyldi vera á einni hæð. Hver nákvæmlega röksemdin var fyrir því veit ég ekki en auðvitað tekur hann mikið landrými og ég vil lýsa skólanum miklu frekar sem skólaþorpi en byggingu.