Fara í efni

Arkitektar VMA hlutu Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar 2026

Feðgarnir Geirharður Þorsteinsson og Þorsteinn Geirharðsson hlutu Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæ…
Feðgarnir Geirharður Þorsteinsson og Þorsteinn Geirharðsson hlutu Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar 2026 fyrir hönnun húsa Verkmenntaskólans á Akureyri. Þessa mynd tók Hilmar Friðjónsson að haustlagi af húsum VMA.

Á árlegri Vorkomu Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta var tilkynnt að feðgarnir og arkitektarnir Geirharður Þorsteinsson og Þorsteinn Geirharðsson hafi hlotið Byggingarlistaverðlaun Akureyrarbæjar fyrir 2026 fyrir hönnun húsa VMA. Meginrök faghóps fyrir þessari útnefningu eru að í húsunum sé rík næmni fyrir fegurð einfaldleikans og skilningur fyrir formun hússins fyrir starfsemi verk- og bóknáms.

Geirharður Þorsteinsson lést árið 2017. Þorsteinn Geirharðsson hafði ekki tök á því að vera viðstaddur afhendingu viðurkenningarinnar í gær. 

Geirharður Þorsteinsson fæddist 14. desember 1934 á Siglufirði og lést 4. maí 2017. Geirharður var stúdent frá MA 1955 og útskrifaðist sem arkitekt frá Tækniháskólanum í Munchen 1962. Geirharður kom að fjölmörgum verkefnum á sinni starfsævi. Hann starfaði í ýmsum arkitektastofum en frá árinu 1983 rak hann sína eigin stofu. Síðustu starfsárin vann hann hjá Skipulagi ríkisins. Verkmenntaskólann hannaði Geirharður á árunum 1981 til 1993.

Þorsteinn Geirharðsson, sonur Geirharðs, er fæddur 18. ágúst 1955 á Akureyri. Þorsteinn tók við áframhaldandi hönnun Verkmenntaskólans frá árinu 1993. Hann kom að 6. – 10. áfanga skólans auk viðbóta við eldri áfanga.
Þorsteinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1974. Fyrri hluta arkitektúrnámsins lauk hann við háskólann í Innsbruck í Austurríki og seinni hlutanum lauk hann frá háskólanum í Toronto 1982. Árið 1988 fór Þorsteinn í framhaldsnám í iðn- og vöruhönnun við Domus Academy í Mílano á Ítalíu. Á starfsferli sínum kom hann að fjölbreyttum verkefnum á sviði skipulags- og húsahönnunar auk hönnunar á ljósum o.fl. Síðustu starfsárin hefur Þorsteinn starfað hjá Framkvæmdsýslu ríkisins.

Í janúar 2023 kom Þorsteinn Geirharðsson í VMA með ýmis gögn sem tengjast hönnun húsa skólans í gegnum tíðina og eru þau nú varðveitt í skólanum. Af því tilefni birtist viðtal við Þorstein hér á heimasíðunni. Þar segir hann m.a.:

Ég er mjög ánægður fyrir pabba hönd og sjálfs mín og er stoltur af þessari byggingu. Í gegnum tíðina hef ég fengið mjög jákvæð viðbrögð um þessi húsakynni frá nemendum sem hafa verið hér. Ég tel að almennt megi segja að það hafi verið mikil natni í hönnun og öllum frágangi við húsið. Það eru margar og skemmtilegar efnisáferðir og litir í húsinu. Fólki finnst byggingin margbreytileg og hún vekur sterkar minningar fólks.
Verkmenntaskólinn var stærsta verk pabba, hans stóra verkefni. Hann teiknaði reyndar ekki allt húsið því ég tók við verkinu þegar ráðist var í að byggja sjötta áfanga af tíu. Ég hélt áfram með húsið í sama anda og pabbi hafði lagt línur með. Hann og hans samstarfsmenn höfðu lagt grunninn í fyrstu áföngum hússins.

Ég þori ekki að segja hver var grunnhugmynd föður míns við hönnun hússins og útlit þess en ég veit að það var mikill metnaður hjá honum og öllum þeim sem að þessu verki komu í upphafi, þar með talið byggingarnefndinni. Meðal annars var farið til Danmerkur til þess að kynna sér og sjá ýmis framhaldsskólahús og ég veit að pabbi og nefndarmenn voru undir miklum áhrifum af því sem fyrir augu bar í Danmörku. Það sem vekur nokkra athygli, í samanburði við marga framhaldsskóla, er að það var ákveðið að skólinn skyldi vera á einni hæð. Hver nákvæmlega röksemdin var fyrir því veit ég ekki en auðvitað tekur hann mikið landrými og ég vil lýsa skólanum miklu frekar sem skólaþorpi en byggingu.

Í faghópnum sem gerði tillögu um veitingu viðurkenningarinnar til arkitekta VMA voru Steinmar Heiðar Rögnvaldsson, Ágúst Hafsteinsson og Einar Sigþórsson.

Í umsögn faghópsins um byggingarlistaverðlaunin segir að tilgangur þeirra sé að vekja athygli á góðri byggingarlist, auka þekkingu og skilning á gæðum bygginga og vera þannig hvati til góðra verka.

Um Verkmenntaskólann segir að einkennandi fyrir hann sé rík formskynjun og samræmi allt frá fyrsta byggingaráfanga til þess nýjasta. Líkja megi VMA við lítið þorp þar sem hinir fjölmörgu einhalla gaflar móti heildarmyndina og bindi byggingarnar saman í sterka heild. Innra yfirbragð skólans sé hlýlegt og frumlegt, bæði í lita- og efnisvali. Einnig sé mikið unnið með ofanljós bæði í kennslustofum og víða í almennum rýmum skólans. Þessi atriði ásamt ríkri næmni fyrir fegurð einfaldleikans og skilningi fyrir formun hússins undir starfsemi verk- og bóknáms séu meginrök faghópsins fyrir vali á arkitektunum og feðgunum Geirharði Þorsteinssyni og Þorsteini Geirharðssyni sem handhöfum byggingarlistaverðlauna Akureyrarbæjar fyrir árið 2026.

Einnig segir í umsögninni að VMA sé gott dæmi um módernisma á Íslandi, nútíma byggingarlist, þar sem hlutverk og notagildi sé í öndvegi. Skólinn sé að hluta byggður sem verkstæði eða verksmiðja með vísan til námsleiða og nafns skólans. Byggingin sé áberandi í umhverfi sínu og hafi yfir sér hógværð og stolt sem svo einkennandi sé fyrir skólann.

Rétt er að rifja upp að byggingarsaga VMA er nokkuð löng, eða allt frá árinu 1981 þegar hafist var handa við fyrsta áfanga hússins. Í 1. áfanga var kennd málmsmíði og svo bættist kennsla í vélstjórn við. Verkmenntaskólinn sem slíkur tók svo ekki til starfa sem slíkur fyrr en haustið 1984. Fyrstu árin var skólinn í raun þrjú stök hús, sem nú eru H og I – álmur og B- og A-álmur. Miðálma, þ.e. mat- og samkomusalur, „Gryfjan“ svokölluð, reis í áföngum 1987 til 1991 og um svipað leyti, 1990, reis C-álma. D-álma, útvörður bóknámsálma í vestri, reis 1993, en var stakstæð allt til ársins 2006, að lokið var við byggingu miðálmu, sem kallast M. Með M-álmunni var öllum áföngum skólans lokið. Skóli sem byggjast átti á átta árum var aldarfjórðung í byggingu.