Vorhlaup VMA í dag
Árlegt Vorhlaup VMA verður ræst í dag við austurinngang skólans kl. 17:30.
Tímataka verður í þremur flokkum – grunnskólaflokki 5 km, framhaldsskólaflokki 5 og 10 km og opnum flokki 5 og 10 km. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki karla, kvenna og kvára, auk fjölda útdráttarvinninga.
Opið verður fyrir forskráningu til kl. 17 í dag og einnig verður hægt að skrá sig í hlaupið dag milli kl. 15 og 17 við austurinngang skólans.
Keppnisgögn verða afhent við austurinnganginn (á móts við Þórslíkneskið) kl. 15.00-17.15 í dag.
Skráningargjald er kr. 500 í grunn- og framhaldsskólaflokki og kr. 3000 í opnum flokki.
Boðið verður upp á hressingu að hlaupi loknu og verðlaunaafhending verður í Gryfjunni í VMA (gengið inn að austan) kl. 18:30. Allir keppendur frá frítt í sund í Sundlaug Akureyrar að hlaupi loknu gegn framvísun hlaupanúmers.
Nánari upplýsingar á Fb.síðu hlaupsins.