Fara í efni

Vorhlaup VMA 16. apríl - forskráning hafin

Vorhlaup VMA á síðasta ári var 29. apríl. Þessi mynd var tekin þegar hlaupararnir voru ræstir af sta…
Vorhlaup VMA á síðasta ári var 29. apríl. Þessi mynd var tekin þegar hlaupararnir voru ræstir af stað.

Fimmtudaginn 16. apríl nk. verður efnt til árleg Vorhlaups VMA og verður það að venju ræst við austurinngang skólans kl. 17:30. Búið er að opna fyrir skráningar í hlaupið og er því ekki eftir neinu að bíða að skrá sig. Opið verður fyrir skráningu til kl. 17 á fimmtudaginn – hlaupadaginn sjálfan. Hægt verður að skrá sig á keppnisdegi í anddyri við austurinngang skólans kl. 15:00 - 17:00 en þó er eindregið mælt með forskráningu.

Tímataka verður og verður keppt í þremur flokkur – grunnskólaflokki 5 km, framhaldsskólaflokki 5 og 10 km og opnum flokki 5 og 10 km. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki karla, kvenna og kvára, auk fjölda útdráttarvinninga.

Afhending keppnisgagna verður við austurinngang skólans á hlaupadegi kl. 15.00-17.15.

Skráningargjald er kr. 500 í grunn- og framhaldsskólaflokki og 3000 kr. í opnum flokki.

Verðlaunaafhending verður í Gryfjunni í VMA (gengið inn að austan) kl. 18:30 og þar verður í boði hressing að hlaupi loknu.

Allir keppendur frá frítt í sund í Sundlaug Akureyrar að hlaupi loknu gegn framvísun hlaupanúmers.

Nánari upplýsingar má finna á Fb.síðu hlaupsins.