Fara í efni

Vorhlaup í dag og vorhlaupskvöldvaka í kvöld

Í dag verða tveir stórir viðburðir í félagslífinu í VMA. Annars vegar verður blásið til Vorhlaups VMA kl. 17:30 og síðan verður vorhlaupskvöldvaka í kvöld í Gryfjunni þar sem stíga á stokk rokksöngvarinn Stefán Jakobsson og tónlistarmaðurinn og uppistandarinn Andri Ívarsson.

Forskráningu í Vorhlaup VMA lauk á miðnætti á vefnum hlaup.is. Sérskráning verður hins vegar í boði fyrir framhaldsskólanema í VMA og MA á skrifstofum skólanna til kl. 12:00 í dag. Þá verður hægt að skrá sig í dag kl. 16:00-17:15 í anddyri líkamsræktarstöðvarinnar Átaks við Strandgötu frá kl. 16:00-17:15 í dag og þar verða númer afhent.

Hlaupið verður í lögformlegri braut – sömu braut og notast er við í hinu árlega Akureyrarhlaupi og er nákvæmlega mæld og viðurkennd af Frjálsíþróttasambandi Íslands. 

Ræst verður við Menningarhúsið Hof kl. 17.30 á morgun, fimmtudaginn 14. apríl, og verða í boði bæði 5 km og 10 km hlaupaleiðir. Keppt verður í þremur flokkum – karla og kvenna - í 5 km hlaupinu: opnum flokki, framhaldsskólaflokki og flokki 15 ára og yngri. Í 10 km verður keppt í opnum flokki og framhaldsskólaflokki, karla og kvenna. Tímataka verður með flögum, sem gefur nákvæmari tíma. Hér má sjá legu brautarinnar. Allar frekari upplýsingar um hlaupið er að finna á vefnum hlaup.is.

Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum flokkum karla og kvenna auk fjölda útdráttarverðlauna.

Að hlaupi loknu gefst hlaupurum kostur á því að nýta sér búningsklefa Átaks heilsuræktar og að bregða sér í heita pottinn og/eða ísbað.

Vorhlaupskvöldvaka í kvöld
Að loknu góðu vorhlaupi er um að gera að skella sér í Gryfjuna á vorhlaupskvöldvöku með Stefáni Jakobssyni og Andra Ívarssyni. Báðir eru þeir tónlistarmenn og Andri er einnig þekktur uppistandari. Þetta verður því ósvikin veisla í tali og tónum.

Kvöldvakan hefst kl. 20:00, húsið verður opnað kl. 19:30. Verð aðgöngumiða kr. 1000 fyrir Þórdunu- og Huginsmeðlimi en 1500 kr. fyrir aðra. Sjoppa verður á staðnum.