Fara í efni

VMA í gervigreindarmyndbandi Anthropic

Myndbandið var unnið sl. vor en var birt fyrir nokkrum dögum. Þar kemur VMA við sögu.
Myndbandið var unnið sl. vor en var birt fyrir nokkrum dögum. Þar kemur VMA við sögu.

Frá því að gervigreindin kom fyrst fram á sjónarsviðið hefur hún tekið umtalsverðum breytingum og enginn veit í hvaða átt hún mun þróast. Það eina sem er nokkurn veginn hundrað prósent öruggt er að við höfum aðeins séð brot af toppnum á ísjakanum.

Eitt af gervigreindarlíkönunum sem hafa náð lengst í Bandaríkjunum, eða sem er kannski öllu heldur regnhlíf fjölda gervigreindarlíkana, er Claude sem Antrophic hefur þróað. Síðastliðið vor sendi Antrophic framleiðsluteymi til Íslands í þeim tilgangi að gera myndband til að varpa ljósi á viðhorf Íslendinga til gervigreindarinnar. Víða var leitað fanga til að afla upplýsinga og fá fram viðhorf fólks, m.a. á Akureyri - þ.á.m. í VMA. Til viðtals í VMA voru Friðrik Óli Atlason, kennari í rafiðngreinum, og Sigfús Arnar Sveinbjörnsson, nemandi í rafvirkjun.

Sjón er sögu ríkari - hér er myndbandið.