Fara í efni

Vinnustaðanám sjúkraliðanema í Randers

Sjúkraliðanemarnir Ása Rut Garðarsdóttir, Inga Fanney Gunanrsdóttir og Kolbrún Steinarsdóttir fóru í byrjun árs í þriggja vikna vinnustaðanám til Randers. Dvölin var styrkt af Erasmus+ sem veitir nemendum í starfsmenntaskólum og nemum á samningi tækifæri til að fara í þjálfunarferðir og starfsnám hjá fyrirtækjum og stofnunum í Evrópu. Námið/þjálfunin er hluti af námi viðkomandi nemanda og metið sem slíkt að dvöl lokinni. VMA hefur á undanförnum árum verið í samstarfi við SOSU Randers skólann sem hefur séð um að útvega sjúkraliðanemum frá VMA vinnustaðanám í Randers. Ása, Inga og Kolbrún hlutu allar sína starfsþjálfun á dvalarheimilum fyrir aldraða, Ása á Plejecenter Mollegården, Inga á Plejecenter Rosenvænget og Kolbrún á Dronningborg Plejecenter.