Vín er ekki bara vín!
Þegar fólk fer á góða veitingastaði gerir það vitanlega kröfur um að fá góðan mat en þáttur þjónsins, þess sem reiðir fram matinn, er ekki síður afar mikilvægur. Góð og fagleg þjónusta er oft vanmetinn þáttur og staðreyndin er sú að hún er oftar en ekki ráðandi um hvort gestir velja viðkomandi veitingastað aftur. Einn af þeim þáttum sem framreiðslunemar í VMA, sem nú stunda nám, læra er vínfræði og allt er lýtur að henni.
Fyrir þá sem á annað borð drekka vín með mat er það mikilvægt í heildurupplifun gestsins. Til þess að geta veitt viðskiptavinum sem bestar upplýsingar um vín þurfa þeir að hafa skilning á einu og öðru í sambandi við þau, t.d. sýru, tannín, sætu og áfengismagni. Og þeir sem lengra eru komnir í fræðunum velta vöngum yfir mismunandi þrúgum, vínræktarlöndum og -héruðum. Auðvitað er það svo að rétt valið vín getur dregið fram það besta í réttinum en rangt val á víni getur yfirgnæft hann. Grunnþekkingu í vínfræðunum þarf framreiðslufólk að búa yfir.
Vínfræðina í framreiðslunáminu í VMA kennir Jón Heiðar Sveinsson, sem starfar sem framreiðslumaður á Múlabergi á Akureyri. Gestafyrirlesari í síðustu viku var Andrea Ylfa Guðrúnardóttir framreiðslumeistari sem býr yfir mikilli reynslu í framreiðslu og ekki síst því sem lýtur að vínfræðunum og vínsmökkun. Andrea Ylfa tók fyrstu skrefin í sínu námi í grunndeild matvæla í VMA en hún lauk framreiðslunáminu frá MK árið 2020 og í framhaldinu meistaranámi í faginu. Í tvígang var Andrea Ylfa valin framreiðslumaður ársins, 2022 og 2023, hún hefur keppt fyrir Íslands hönd á Nordic Waiter (Norðurlandamótinu í framreiðslu) og starfað sem dómari í framreiðslukeppnum, meðal annars á EuroSkills - Evrópumóti iðngreina. Árið 2023 tók hún þátt í að opna veitingastaðinn Oto í Reykjavík og starfaði þar sem veitingastjóri. Oto fékk Michelin-meðmæli og viðurkenningu sem besti veitingastaður landsins árið 2024.
Andrea Ylfa miðlaði þekkingu sinni og reynslu til framreiðslunemanna í VMA og leiddi þá áfram í vínsmökkun – í bæði hvítvíni og rauðvíni. Rétt er að undirstrika að vínsmökkun í námi snýst ekki um að drekka áfengi, heldur um að þjálfa lyktar- og bragðskynið af nákvæmni. Nemendur læra að greina ávaxtatóna, krydd, eikaráhrif og jarðtóna, auk þess að meta gæði og aldur vínsins. Þessi skynjunarþjálfun nýtist nemendum ekki aðeins við vínval, heldur einnig þegar kemur að því að meta gæði annarra drykkja, svo sem kaffis, tes, bjórs og óáfengra drykkja. Og sem fyrr segir er þetta mikilvægur þáttur í starfi alls framreiðslufólks.
Fleiri þekktir fagmenn í veitingageiranum hafa komið í heimsókn í VMA og miðlað af þekkingu sinni og reynslu til framreiðslunemanna. Þannig kom nýverið í heimsókn Tristan Máni Wolfgang Maríönnuson sem er veitingastjóri á veitingastaðnum Fiskfélaginu í Reykjavík.