Vetrarfrí 19. og 20. febrúar
Fmmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar verða nemendur og starfsfólk í vetrarfríi, sem þýðir að skólinn verður lokaður þessa daga.
Kennsla hefst aftur mánudaginn 23. febrúar samkvæmt stundaskrá.
Sem fyrr eru vetrarfrísdagar skólans tileinkaðir fjölskyldunni sem fyrst nam land í Eyjafirði. Þessa tvo vetrarfrísdaga minnumst við sérstaklega landnámskonunnar Þórunnar hyrnu og dóttur hennar Þorbjargar hólmasólar.
Til upprifjunar úr Íslandssögunni:
Kona Helga magra, landnámsmannsins í Eyjafirði, var Þórunn hyrna. Sagan segir að þau hafi siglt norður fyrir Ísland árið 890, inn Eyjafjörð og tekið land á Árskógsströnd vestan fjarðarins. Þar höfðu þau vetursetu en fluttu árið eftir inn að Bíldsá austan fjarðar. Þau hjónin ákváðu að setjast að til frambúðar í Kristnesi, vestan fjarðar og enn innar í firðinum. Á leið þangað, á hólma í Eyjafjarðará, fæddi Þórunn hyrna dóttur þeirra, Þorbjörgu hólmasól, sem var þar með fyrsti Eyfirðingurinn.