Fara í efni

Vetrarfrí 19. og 20. febrúar

Fimmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar verður vetrarfrí nemenda og starfsmanna í VMA. Vetrarfrí í skólanum eru kennd við Helga magra og Þórunni hyrnu og gefum við okkur það að nú höldum við upp á afmæli Þórunnar hyrnu og dóttur hennar Þorbjargar hólmasólar. Njótið vel og hlökkum til að takast á við skólastarfið á ný með ykkur mánudaginn 23. febrúar. 

Skólameistari