Fara í efni

Vélstjórnin hefur mikið aðdráttarafl

Hér er Hörður Óskarsson brautarstjóri málmiðnbrautar að uppfræða nemendur í grunndeild málmiðnaðar h…
Hér er Hörður Óskarsson brautarstjóri málmiðnbrautar að uppfræða nemendur í grunndeild málmiðnaðar haustið 2016 um logsuðu.

Á hverju ári frá 2014 hefur Hörður Óskarsson, brautarstjóri málmiðnbrautar, við upphaf hvers skólaárs kannað hjá nýnemum í grunndeild málmiðnaðar (námið þar er tvær annir) hvert hugur þeirri stefni til frekara náms. Með öðrum orðum; á hvaða námsbraut nemendur stefni að lokinni grunndeild. Ætli nemendur að verða bifvélavirkjar, vélvirkjar, rennismiðir, blikksmiðir, vélstjórar eða stálsmiðir þurfa þeir að hafa lokið grunndeild málmiðnaðar.

Þó svo að þessi óformlega könnun Harðar hafi gefið ákveðnar vísbendingar hvert hugur nemenda hefur stefnt hefur niðurstaðan ekki endilega orðið nákvæmlega sú hin sama. En meginlínurnar hafa þó verið í þessa átt.

Frá árinu 2014 til og með haustönn 2026, á þrettán ára tímabili, hefur 621 nemandi hafið nám í grunndeild málmiðnaðar í VMA. Meðaltalsfjöldi nýnema að hausti á þessu árbili hefur því verið 48 nemendur, sem er nákvæmlega sá fjöldi nýnema sem hófu nám á þessari námsbraut á þessu skólaári. Flestir voru nýnemar á málmiðnbraut við upphaf skólaárs 2015 eða 60 en lægsta talan var 2023 eða 43.

Á þessu árabili hafa 69 stúlkur hafið nám á málmiðnbraut eða um 11% nemenda.

Vert er að ítreka að þessi heildarnemendafjöldi við upphaf skólaárs segir ekki til um hversu margir nemendur skila sér áfram í námi því alltaf er það svo að ákveðið brottfall verður, af ýmsum ástæðum, einkum þó eftir fyrstu önnina.

Ef heildarniðurstöður þessarar árlegu könnunar Harðar í þrettán ár eru skoðaðar kemur í ljós að 38 (6,1%) nemendur sögðust stefna á stálsmiðinn, 8 (1,2%) á bliksmíði, 3 (0,4%) á rennismíði, 39 (6,2%) á vélvirkjun, 275 (44,3%) á vélstjórn, 159 (25,5%) á bifvélavirkjun og 102 (16,3%) óvisst/annað.

Þessar tölur varpa ljósi á að þorri nemenda sem innritast í grunndeild málmiðnaðar stefnir á vélstjórn eða bifvélavirkjun. Út af fyrir sig kemur þetta ekki á óvart en það sem hins vegar er nokkuð sláandi er lítill áhugi á smíðagreinunum stálsmíði, blikksmíði og rennismíði – aðeins samtals 49 nemendur hafa síðustu þrettán ár sagst stefna á þessar þrjár faggreinar við upphaf náms síns eða tæplega 8% nemenda.

Ekkert skal fullyrt um hvort þessar tölur segi eitthvað til um hvort þetta mynstur eigi við um aðra verknámsskóla sem bjóða upp á sambærilegar námsbrautir – og þetta eigi þar með við um landið allt – en ekki kæmi á óvart að þetta gefi nokkuð góða mynd af stöðunni.