Vélstjórnarnemar í hvalaskoðun
Mikilvægt er að brjóta upp hina venjubundnu kennslu í skólastofunni og fara út á örkina og sjá hlutina frá öðru sjónarhorni. Þetta gerðu nemendur Vilhjálms Kristjánssonar í einum af vélstjórnaráföngunum sem hann kennir. Þeim var boðið í hvalaskoðun á Eyjafirði með bátnum Lilju hjá fyrirtækinu Special Tours.
Siglt var á hvalaslóð norður undir Rauðuvík við vestanverðan Eyjafjörð og þar var heldur betur líflegt, fullt af hnúfubökum sem sýndu nemendum allar sínar bestu hliðar. Sannarlega er tignarlegt að sjá þessi risavöxnu dýr í nálægð, hnúfubakurinn er á bilinu 14-16 metra langur og vegur fullvaxinn um þrjátíu tonn.
„Ferðin tók um 3 klukkustundir og í raun má segja að hún hafi sameinað þrennt; að nemendur kynnist vélum og búnaði sem er í svokölluðu tvíbotna skipi eins og því sem siglt var með, að þeir fái innsýn í ábyrgðarsvið vélstjóra um borð í svona skipi og í þriðja lagi að nemendur kynnist öryggismálum og -búnaði um borð í skipum sem sigla með farþega,“ segir Vilhjálmur Kristjánsson kennari.
Vélstjórnarnemar og VMA þakka Special Tours Kristjáni Helgasyni skipstjóra og áhöfn og Vilhjálmi kennara af heilum hug fyrir þessa ánægjulegu og fróðlegu sjóferð.