Fara í efni

Vel heppnuð nýnemahátíð - myndir

Í góðum gír á nýnemahátíðinni. Mynd: Kamilla
Í góðum gír á nýnemahátíðinni. Mynd: Kamilla

Nýnemahátíðin fór fram sl. fimmtudag og tókst með miklum ágætum. Sólmundur Hólm, uppistandari og útvarpsmaður, stýrði samkomunni í Gryfjunni og síðan var efnt til herlegrar grillveislu suður undir vegg skólans í frábæru veðri. Þessi dagur var sannarlega ánægjulegur eftir vel heppnaða nýnemaferð daginn áður. Nýnemar eru enn og aftur boðnir hjartanlega velkomnir í VMA!

Hilmar Friðjónsson og Kamilla Ósk Heimisdóttir voru með myndavélarnar á lofti og tóku mikinn fjölda skemmtilegra mynda á nýnemahátíðinni.

Myndaalbúm Hilmars Friðjónssonar

Myndaalbúm Kamillu Óskar Heimisdóttur