Fara í efni

Vegna opnunar í prófatíð

Frá og með mánudeginum 2. desember verða nokkrar kennslustofur í D-álmu opnar fyrir nemendur til kl. 21 mánudaga til fimmtudaga og til kl. 18 á föstudögum (lokadagur er sjúkraprófsdagur þann 18. desember).  Stofur D-09, D-10, D-14 og D-17 verða lokaðar. Nemendur geta farið í aðrar stofur í álmunni til að læra.

Gert er ráð fyrir því að nemendur gangi inn um inngang að vestan.

Til að þetta verkefni gangi vel þá þarf að ganga vel um og er nemendum treyst fyrir því.

Vert er að minna á að bókasafnið er opið til kl. 18 alla daga nema föstudaga.