Vefmyndavélar uppspretta listsköpunar
Í dag, þriðjudaginn 10. febrúar kl. 16:15, heldur myndlistarkonan Julie Pasila þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri. Hann fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis.
Julie Pasila er kanadísk myndlistarkona sem býr á Siglufirði helming ársins. Hún vinnur aðallega með stafræna ljósmyndun, ljósrit (photograms) og fundnar myndir. Frá árinu 2012 hefur hún unnið prentverk og stutt myndbönd úr vefmyndavélum af vegum víða um landið. Í þessari seríu, sem telur nú mörg hundruð verk, beinir hún athygli okkar að því sem gerist án þess að við veitum því eftirtekt, fíngerðum breytingum á ljósi, árstíðum og loftslagi.
Julie Pasila hefur aðallega sýnt verk sín á meginlandi Evrópu, hér á Íslandi og í Bandaríkjunum. Meðal sýningarstaða í New York eru Ulterior Gallery, Momenta, Cathouse Proper og Carriage Trade Gallery; í Evrópu hefur hún sýnt í Apollohuis í Eindhoven, Waterfront Gallery í Ghent og á Íslandi í Kompan Gallery, Kaktus og Listasafninu á Akureyri. Hún hefur tekið þátt í ljósmyndahópnum „Dust“ í París sem var sýndur í Pompidou-safninu í París og er nú hluti af fastasafni þeirra.
Pasila er útskrifuð frá Ontario College of Art í Toronto og hélt áfram námi við Akademie voor Kunst en Industrie (AKI) í Hollandi, auk þess sem hún stundaði nám í myndbandadeild og arkitektúrdeild Kunstakademie Düsseldorf.
Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins.