Fara í efni

Umsóknir / innritun á vorönn 2022

Innritun á vorönn 2022

Dagsetningar:

  •  Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2022 verður dagana 1.-30. nóvember nk.

Nánari upplýsingar varðandi innritun á vef Menntamálastofnunar, www.mms.is

Sótt er um nám í VMA í gegnum innritunarvef Menntamálastofnunar hér.

Umsækjendur um undirbúningsnám fyrir búfræði í LbhÍ sækja um á náttúruvísindabraut (NÁB) en skrifa búfræði í athugasemd.

Einnig er hægt að óska eftir aðstoð frá sviðsstjórum brauta og námsráðgjöfum skólans.

Inntökuskilyrði nýnema

Frá og með haustönn 2015 gildir að alla jafna þarf að ljúka kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri til að komast í iðnnám, starfsnám og námsbrautir til stúdentsprófs.

Inntökuskilyrði á iðnnáms-, starfsnám- og námsbrautir til stúdentsprófs er C í ensku, íslensku og stærðfræði.

 
Enska
Íslenska
Stærðfræði
1.þrep - Grunnur 1

*

*

*

1.þrep - Grunnur 2

D

D

D

1.þrep - Grunnur 3

C&C+

C&C+

C&C+

2.þrep

≥B

≥B

≥B

 

Ef kemur til fjöldatakmarkana við innritun á brautir eða í áfanga, mun skólinn fyrst og fremst hafa til hliðsjónar árangur í kjarnagreinum, skyldum greinum, umsagnir úr grunnskóla og ástundun.

Nánari upplýsingar um innritun má sjá á menntagatt.is.

Innritun úr 9.bekk

Athygli er vakin á auglýsingu um breytingu á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviðum með aðalnámskrá grunnskóla. Breytingarnar varða brautskráningu úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið. Í auglýsingu nr. 894/2016, sem birt var í Stjórnartíðindum 31. október 2016, staðfesti mennta- og menningarmálaráðherra breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviðum með aðalnámskrá grunnskóla. Meginbreytingin lýtur að því að ef niðurstöður samræmdra könnunarprófa sýna að nemandi í 9. bekk hefur sýnt framúrskarandi (A) eða góða hæfni (B) samkvæmt hæfnikröfum 10. bekkjar og náð framúrskarandi árangri í öðrum greinum geta foreldrar óskað eftir því við skólastjóra grunnskóla að barn þeirra sé útskrifað úr grunnskóla áður en tíu ára skyldunámi er lokið. Sjá nánari í frétt á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytis. Nánari upplýsingar hér.

Almenn inntökuskilyrði

Eftirfarandi reglur gilda um inntöku nemenda í Verkmenntaskólann á Akureyri.

  1. Nemandi, sem lokið hefur námi í grunnskóla eða hlotið aðra jafngilda menntun, á rétt á að hefja nám í Verkmenntaskólanum að fullnægðum kröfum um starfsþjálfun þar sem hennar er krafist.

  2. Umsækjandi sem orðinn er 18 ára getur hafið nám í skólanum þótt hann hafi ekki lokið grunnskólaprófi eða sambærilegu prófi.

  3. Nemendur með lögheimili í sveitarfélögum sem eiga aðild að skólanum hafa að öðru jöfnu forgang um skólavist.

  4. Nemendur sem búa utan þessa svæðis og óska að stunda nám sem ekki er í boði í heimabyggð þeirra hafa jafnan rétt og heimamenn.

 

Mat á námi úr öðrum skólum

Ef nemandi flyst á milli skóla, halda þeir áfangar einkunn sinni sem hann flytur með sér, samræmist þeir námskrá Verkmenntaskólans. Aðra áfanga má meta sem valgreinar. Nemandi skal hvorki hagnast né tapa á því að flytja á milli skóla, falli fyrra nám að því námskerfi sem Verkmenntaskólinn býður.

 

Innritunargjöld

Öllum nemendum skólans ber að greiða innritunargjald og er greiðsla þess forsenda fyrir því að þeir fái að stunda nám við skólann. Innheimta þessara gjalda fer fram í júní fyrir haustönn og í nóvember fyrir vorönn. Greiðslufrestur er 3 vikur, en þá hækkar innritunargjaldið skv. ákvörðun skólanefndar.

Innritunargjald í fjarkennslu og meistaranámi eru með öðrum hætti og þurfa nemendur þar að standa undir þriðjungi kennslukostnaðar.