Fara í efni

Upphaf skóla - upplýsingar fyrir nýnema fædda 2010/2011

Kæru nýnemar og forsjáraðilar

 

Velkomin í VMA!

Nú styttist í fyrsta skóladaginn og við orðin spennt að fá ykkur í skólann.

Nýnemar mæta mánudaginn 17. ágúst kl. 10.30 og stendur dagskráin til kl. 14.00.

Dagskráin er í höndum nemendafélagsins Þórdunu og starfsfólks VMA.

  • Við hittumst fyrst í Gryfjunni, sal skólans. Hægt er að koma inn í skólann um innganga að vestan, norðan og austan.
  • Nemendum er vísað í stofu eftir því hjá hvaða umsjónarkennara nemandi er. Upplýsingar um umsjónarkennara finnið þið í Innu.
  • Nauðsynlegt er að koma með fartölvu og síma en þið fáið aðstoð við að skrá ykkur inn í tölvukerfi skólans og öll helstu kerfi sem skólinn notar.
  • Minnum á að nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa rafræn skilríki við upphaf skólagöngu.
  • Nemendafélagið býður nemendum upp á pylsur í hádeginu. Endilega látið vita á maria.sigurdardottir@vma.is ef um ofnæmi eða óþol er að ræða.

Minnum á að á heimasíðu skólans eru ýmsar upplýsingar varðandi skólabyrjunina.

Jafnframt birtast þar upplýsingar um og hlekkur á fjarfund með forsjáraðilum sem haldinn verður mánudaginn 17. ágúst kl. 17:00

Með ósk um gott samstarf og von um velgengni ykkar í VMA.

Skólameistari