Umsóknarfrestur um fjarnám VMA til 28. ágúst
19.08.2026
Til viðbótar við nám í dagskóla býður VMA sem fyrr upp á fjarnám í hinum ýmsu áföngum. Meistaraskólinn er hluti af fjarnámi VMA.
Umsóknarfrestur um fjarnám á haustönn rennur út annan föstudag, 28. ágúst. Í kjölfarið verður unnið úr umsóknum og nemendur innritaðir frá 31. ágúst til 4. september. Kennsla hefst síðan 7. september.