Fara í efni

Umsóknarfrestur um fjarnám á haustönn til 24. ágúst

Skráning í fjarnám í VMA á haustönn er nú í fullum gangi og fólk sem hefur hug á að stunda fjarnám hvatt til að skrá sig. Umsóknarfrestur er til 24. ágúst nk. Kennsla fjarnema hefst síðan 7. september.

Hver eining í fjarnáminu kostar 6000 kr. og innritunargjald er 6000 kr.

Allar upplýsingar um fjarnámið veitir Baldvin Ringsted sviðsstjóri í síma 464 0300 eða í gegnum netfangið baldvin@vma.is