Fara í efni

Tvær sýningar á Bót og betrun um helgina

Örn Smári, Franz Halldór og Svavar Máni á sviðinu.
Örn Smári, Franz Halldór og Svavar Máni á sviðinu.

Um helgina, nánar tiltekið í kvöld, föstudagskvöld, og annað kvöld kl. 20:00 verða sýningar á farsanum Bót og betrun í Gryfjunni í VMA í uppfærslu Leikfélags VMA. 

Það þarf ekki að hafa um það mörg orð að sýningin sló rækilega í gegn þegar hún var frumsýnd um síðustu helgi og var leikhópnum fagnað vel og innilega á fyrstu tveimur sýningunum. Það ætti því enginn að láta þessa sýningu fram hjá sér fara, hún er mannbætandi enda er sagt að hláturinn lengi lífið. Og þessi uppfærsla á Bót og betrun kallar fram hlátur áhorfenda, oft og lengi!

Miðasalan er hér á Tix.is. Auk sýninganna tveggja núna um helgina hefur verið bætt við tveimur sýningum í sölu að viku liðinni, 17. og 18. febrúar.