Fara í efni

Tónsmíðar í þriðjudagsfyrirlestri

Tetsuya Hori, tónskáld.
Tetsuya Hori, tónskáld.

Í dag, þriðjudaginn 25. október, kl. 17-17.40 heldur japanska tónskáldið Tetsuya Hori þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni The (love) Song Book. Í fyrirlestrinum fjallar Tetsuya um tónsmíðar sínar fyrir hljóðfæri, raddir, einleikara, kammersveitir og sinfóníuhljómsveitir.

Tetsuya Hori kennir tónsmíðar í háskólum í Evrópu, Asíu og Norður Ameríku. Hann hefur hlotið fjölmörg verðlaun, s.s. frá Showa University of Music, International Music Prize for Excellence in Composition 2011 – Best CD Album 2011 og Semi-Finalist 2012 Queen Elisabeth Composition í Belgíu. Hann er jafnframt handhafi Orchestral Masters verðlaunanna vol. 10 hjá ABLAZE Records. Hori dvelst nú í gestavinnustofu Gilfélagsins. 

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem fer fram á ensku. 

Fyrirlestrasröðin Þriðjudagsfyrirlestrar í Listasafninu eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, Myndlistarfélagsins og MA.