Fara í efni

Þriðjudagsfyrirlestur um hönnun merkja

Þórhallur Kristjánsson, grafískur hönnuður.
Þórhallur Kristjánsson, grafískur hönnuður.

Í dag, þriðjudaginn 1. desember, kl. 17 heldur Þórhallur Kristjánsson, grafískur hönnuður og kennari við Myndlistaskólann á Akureyri, fyrirlestur í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni Auðkenni – Logohönnun: Tilfinning eða vísindi? .

Í fyrirlestrinum fjallar Þórhallur um vinnuna á bakvið góð merki.

Þórhallur Kristjánsson útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1995 og hefur starfað sem slíkur allar götur síðan. Frá 2006 hefur hann starfað sjálfstætt en var áður hönnuður og hönnunarstjóri á auglýsingastofum í Reykjavík. Hann kennir einnig við Listhönnunardeild Myndlistaskólans á Akureyri. 

Þórhallur hefur hannað fjölda þjóðþekktra merkja fyrir fyrirtæki, félagasamtök og sveitarfélög auk þess hefur hann setið í dómnefndum fyrir samkeppnir um merki. 

Fyrirlesturinn er níundi í röð þriðjudagsfyrirlestra í vetur.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri.

Aðgangur á fyrirlesturinn í dag er ókeypis og eru allir velkomnir.