Þriðja frístundahúsið rís
Það er rífandi gangur hjá nemendum á öðru ári í húsasmíði í byggingu frístundahúsa, sem er stóra verklega verkefni vetrarins. Fyrr í haust voru tvö eins frístundahús reist á planinu norðan við húsnæði byggingadeildar og síðan hefur kappsamlega verið unnið að frágangi húsanna að utan sem innan.
Í gær var síðan þriðja húsið af sömu gerð reist. Forsmíðaðar vegg- og þakeiningar voru færðar út og húsinu púslað saman með aðstoð krana. Verkefni vetrarins verður því að smíða þessi þrjú eins frístundahús fyrir tjaldsvæðið á Hömrum þar sem ætlunin er að leigja þau út til gesta.
Við upphaf skólaárs voru tvö hús frá síðasta skólaári á planinu fyrir norðan skólann. Annað þeirra hefur nú verið sótt og fengið nýtt hlutverk en eftir er að reka smiðshöggið á ýmislegt í frágangi hins hússins. Því eru nú fjögur frístundahús fyrir norðan húsnæði byggingadeildar á mismunandi byggingarstigi.
Þau þrjú frístundahús sem nemendur á öðru ári í húsasmíði hafa nú þegar reist á þessari önn eru, eins og nærri má geta, nemendum mikilvæg þjálfun í byggingu timburhúsa. En ekki aðeins er bygging þeirra dýrmætur lærdómur fyrir húsasmíðanemana heldur einnig nemendur í öðrum greinum sem kenndar eru í VMA. Nemendur í rafvirkjun sjá um rafmagnið og nemendur í pípulögnum sjá um pípulagnirnar. Hér eru því margar flugur slegnar í einu höggi.