Fara í efni

Þetta hefst með góðu skipulagi

Birkir Orri Jónsson formaður Þórdunu.
Birkir Orri Jónsson formaður Þórdunu.

„Þetta er þannig starf að maður verður að vera agaður og það er jafnframt nauðsynlegt að hafa góða yfirsýn. Dagarnir geta verið langir og oft þarf að senda marga tölvupósta. En þetta hefst allt saman með góðu skipulagi,“ segir Birkir Orri Jónsson, formaður nemendafélagsins Þórdunu. Hann var kjörinn formaður Þórdunu sl. vor og er því núna á sínu fyrsta ári sem formaður. Birkir er þó enginn nýgræðingur í félagslífinu í VMA því hann hefur áður verið eignastjóri Þórdunu í eitt starfsár og skemmtanastjóri í tvö vetur. 

Birkir rifjar upp að hann hafi hafið nám í VMA á íþrótta- og lýðheilsubraut haustið 2023. Haustið 2024 ákvað hann að breyta til. „Ég fann mig ekki nógu vel í því námi og það hafði líka sitt að segja að allir vinir mínir voru þá í grunndeildinni í málminum. Ég ákvað því að fara sömu leið með það í huga að fara í framhaldinu í vélstjórn. Núna er ég á fimmtu önn í vélstjórnarnáminu og líkar það mjög vel,“ segir Birkir.

Glerárskóli var grunnskóli Birkis og þar fékk hann félagsmálabakteríuna. Var meðal annars formaður nemendaráðsins og kom að uppsetningu og skipulagningu árshátíða skólans. „Ég myndi lýsa sjálfum mér sem félagslyndum. Ég hef gaman af því að vinna með fólki og vinna fyrir fólk. Mér finnst alls ekki erfitt að standa upp á sviði og tala fyrir framan fullan sal af fólki,“ segir Birkir.

En hvernig kom það til að Birkir ákvað að skella sér í félagsmálin í VMA? „Það kom þannig til að frændi minn var í stjórn Þórdunu þegar ég kom í skólann haustið 2023. Þá vantaði eignastjóra og ég ákvað að slá til. Síðan var ég skemmtanastjóri í tvö ár og svo formaður núna. Ég væri ekki í þessu ef mér þætti þetta ekki gaman. Það er gaman að skipuleggja viðburði og það gefur mér mikið þegar nemendur mæta vel á viðburði og hafa gaman. Mínir uppáhalds viðburðir eru nýnemaferðirnar og árshátíðir skólans. Nýnemaferðir eru í næstu viku og ég hlakka mjög til þess að taka þátt í að gera þær eftirminnilegar fyrir nýnemana. Svo verður nýnemaballið föstudagskvöldið 28. ágúst. Við stefnum að því að Sturtuhausinn verði núna á haustönn og þá hlakka ég til þess að sjá hvað Leikfélag VMA mun bjóða okkur upp á í vetur. Þar er flott og metnaðarfull stjórn og ég veit að hún er með eitt og annað áhugavert í gangi. Stóra verkefni Leikfélagsins í vetur verður kynnt síðar.“

Það er auðvitað í ótal mörg horn að líta hjá formanni Þórdunu. Þó svo að Birkir stundi krefjandi nám í vélstjórn eru ófá handtökin í félagsmálunum aldrei langt undan. Hann segist alls ekki stressaður yfir þessu öllu saman, miklu frekar sé hann sallarólegur. Það mikilvægasta sé að vera yfirvegaður og skipulagður, þannig gangi hlutirnir best. Birkir nefnir að skipulag nýnemaballsins hafi ekki verið hrist fram úr erminni núna í upphafi skólaárs, í raun hafi línur verið lagðar strax sl. vor og í tvígang hafi stjórn Þórdunu átt fjarfundi í sumar til þess að hnýta lausa enda.

Birkir ítrekar að hann sé bjartsýnn á þátttöku nemenda í félagslífinu í vetur og hann hvetur þá til þess að vera í góðu sambandi við stjórn Þórdunu og Maríu viðburðastjóra ef þeir búi yfir hugmyndum að einhverju skemmtilegu eða vilji leggja sitt af mörkum á einn eða annan hátt. Eitt af því sem Birkir segist hafa mikinn áhuga á sé að sjá einskonar húsband eða hljómsveit VMA verða til, hljómsveit sem sé tilbúin til þess að taka þátt í ýmsum viðburðum í félagslífinu.