Fara í efni

Þátttaka í Feneyjatvíæringnum í þriðjudagsfyrirlestri

Hildigunnur Birgisdóttir.
Hildigunnur Birgisdóttir.

Síðasti þriðjudagsfyrirlestur vetrarins verður í dag í Listasafninu á Akureyri kl. 16:15. Myndlistarkonan Hildigunnur Birgisdóttir segir frá listsköpun sinni og ekki síst þátttöku í Feneyjartvíæringnum árið 2024. Aðgangur er ókeypis.

Hildigunnur býr og starfar í Reykjavík en hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003. Hún var sem sagt fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2024 en einnig hafa verk hennar verið á sýningum í meðal annars Listasafni Reykjavíkur, Listasafninu GES-2 sem rekið er af V-A-C Foundation í Moskvu og H2H í Aþenu. Þá eru verk Hildigunnar í safneign Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur. Nýlistasafnsins og Listasafnsins á Akureyri.

Hildigunnur er þekkt fyrir blæbrigðaríka listsköpun sem lítur gagnrýnum augum á hnattræn framleiðslu- og útflutningskerfi og lífshlaup varanna sem þau geta af sér.

Að þriðjudagsfyrirlestrunum í vetur standa Myndlistarfélagið á Akureyri, Gilfélagið, Listasafnið á Akureyri og VMA.