Fara í efni

Það er ekkert eins og Akureyri - nýja VMA-lagið

Já, það er ekkert eins og Akureyri!
Já, það er ekkert eins og Akureyri!

Á árshátíð VMA fyrr í þessum mánuði var einn af hápunktunum frumflutningur nýs VMA-lags sem ber einfaldlega heitið Akureyri. Lagið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum – t.d. Spotify, Boomplay.com og Youtube. Lag og texta sömdu JóiPé og strákarnir í Sprite Zero Klan – Kolbeinn Sveinsson og Daníel Óskar. Auk þeirra syngja lagið Hafdís Inga Kristjánsdóttir, sem hefur lengi verið áberandi í tónlistarlífinu í VMA, og Sigurður Einar Þorkelsson, skemmtanastjóri Þórdunu, kemur einnig við sögu

Steinar Bragi Laxdal, formaður Þórdunu, segir að fljótlega eftir að hann tók við formennskunni haustið 2022 hafi hann viðrað þá hugmynd að hljóðrita nýtt VMA-lag en af því hafi ekki orðið fyrr en nú. Í millitíðinni vann Ársæll Gabríel lag sem var frumflutt á árshátíð VMA í fyrra en svo var rykið dustað af samstarfi við JóaPé og Sprite Zero Klan og útkoman var Akureyri sem hér má heyra. Lokið var við vinnslu lagsins um mánaðamótin febrúar-mars. Lokaupptökur voru í hljóðverinu Tónhyl í Reykjavík og JóiPé sá síðan um eftirvinnslu og hljóðblöndun. Steinar Bragi segist vera mjög ánægður með útkomuna og höfundar lagsins ekki síður.