Fara í efni

Textíllist í þriðjudagsfyrirlestri

Ragnheiður Björk Þórsdóttir.
Ragnheiður Björk Þórsdóttir.

Í dag, þriðjudaginn 4. nóvember kl. 16.15, heldur Ragnheiður Björk Þórsdóttir textíllistamaður þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Að byggja stafræna textílbrú milli fortíðar og framtíðar. Aðgangur er ókeypis.

Í fyrirlestrinum fjallar Ragnheiður um Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi, sögu þess, hlutverk og markmið. Miðstöðin leggur áherslu á nýsköpunar-, þróunar- og samstarfsverkefni sem stuðla að atvinnuuppbyggingu í tengslum við textíl, menningu og sögu svæðisins. Hún fer jafnframt yfir það öfluga rannsóknar- og þróunarstarf sem þar fer fram og segir frá Textíl Labinu og alþjóðlegum vinnustofum fyrir listamenn. Einnig verður fjallað um aðstöðu Textílmiðstöðvarinnar í gamla Kvennaskólanum, sem og húsnæði Textíl Labsins að Þverbraut 1.

Ragnheiður Björk Þórsdóttir stundaði nám við Myndlistar- og handíðaskóla Íslands, J.F.K. University, Kennaraháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Ragnheiður var myndmenntakennari í Síðuskóla í nokkur ár og kenndi við VMA í 30 ár, m.a. sem brautarstjóri listnáms- og hönnunarbrautar skólans. Síðustu sjö árin hefur hún verið í hlutastarfi sem sérfræðingur á sviði vefnaðar og textíls við Textílmiðstöð Íslands og kennt vefnað við Hallormsstaðarskóla og Myndlistaskólanum í Reykjavík. Ragnheiður hefur einnig verið starfandi textíllistamaður og rekið vinnustofu á Akureyri en hefur nú fært hana til Grenivíkur. Hún er meðlimur í Textílfélagi Íslands, SÍM, Félagi íslenskra vefnaðarkennara og vefara og hefur tekið þátt í sýningum hérlendis og erlendis síðastliðin 40 ár.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru sem fyrr samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins. Fyrirlestur Ragnheiðar í þessari þriðjudagsfyrirlestraröð er sá síðasti á þessu ári en þeir munu hefjast aftur með hækkandi sól í febrúar á næsta ári.