Tólf þreyttu sveinspróf í vélvirkjun
Um liðna helgi var sveinspróf í vélvirkjun í húsnæði málmiðnbrautar í VMA. Að þessu sinni þreyttu tólf prófið. Að jafnaði er sveinspróf í vélvirkjun tvisvar á ári, í febrúar og síðan aftur á haustin. Þessar myndir tók Hörður Óskarsson brautarstjóri málmiðnbrautar af próftökum í verklega prófinu.
Sveinsprófinu skiptist sem fyrr í skriflegt próf, smíðaverkefni, bilanaleitarverkefni, slitmælingarverkefni, suðuverkefni, frágang smíðaverkefnis og vinnuhraða við smíðaverkefnið og var hver þáttur metinn sérstaklega. Standast þarf alla prófþætti til að ljúka sveinsprófinu.
Próftakarnir, sem starfa hjá hinum ýmsu fyrirtækjum í sinni iðn, hafa allir stundað nám við VMA. Þeir eru:
Aðalbjörn Leifsson, Slippurinn Akureyri ehf.
Auðbergur Jónsson, Alcoa Fjarðaál
Birnir Kristjánsson, Vélvirki ehf.
Bjarki Þór Óskarsson, HD ehf.
Darri Rúnarsson, Vélvirki ehf.
Hafliði Hinriksson, G. Skúlason vélaverkstæði ehf.
Jörvi Blær Traustason, Vélvirki ehf.
Lárus Stefánsson, Kælismiðjan Frost ehf.
Óskar Óðinn Sigtryggsson, Slippurinn Akureyri ehf.
Ragnar Berg Agnarsson, PCC BakkiSilicon
Sóley Sandra Gunnlaugardóttir, Slippurinn Akureyri ehf.
Tristan Árni Eiríksson, Kælismiðjan Frost ehf.