Sveinsbréf afhent í Hofi
12.11.2026
Það er ætíð hátíðleg stund þegar nýsveinar fá afhent sveinsbréf sín, sem er um leið staðfesting á fullum starfsréttindum í viðkomandi iðngrein. Þann 4. nóvember sl. fengu ríflega 50 nýsveinar afhent sveinsbréf sín við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Afhent voru sveinsbréf í húsasmíði, vélvirkjun, prentsmíði, kjötiðn, hársnyrtiiðn og bifvélavirkjun. Flestir voru nýsveinarnir í húsasmíði. Margir af nýsveinunum lærðu sínar iðngreinar við VMA.
Þessar myndir voru teknar við afhendingu sveinsbréfanna.
VMA óskar nýsveinunum til hamingju með sveinsbréf sín.