Súpur og canapé
22.04.2026
Í viku hverri elda nemendur í öðrum bekk í matreiðslu í VMA - sem er fyrri önnin af tveimur til sveinsprófs að loknu tveggja anna grunnnámi matvælagreina – hina ýmsu rétti og starfsfólk VMA nýtur góðs af og fær tækifæri til þess að láta gæla við bragðlaukana.
Í dag buðu nemendur til mikillar bragðlaukaveislu á kennarastofunni í A-álmu skólans. Í boði var léttur hádegisverður sem hæfði vel sumarveðrinu á síðasta degi vetrar, tvær tegundir af súpum og hinir ýmsu smáréttir eða canapé. Rann ljúflega niður og klikkaði ekki frekar en fyrri daginn! Hilmar Friðjónsson kennari var með myndavélina á lofti.
Gleðilegt sumar!