Fara í efni

Styrkleikar VMA og Þórdunu 14. október

Styrkleikar VMA og Þórdunu fyrir Krabbameinsfélag Íslands! 🎗️

Þann 14. október næstkomandi ætlum við að standa fyrir Styrkleikum hér í skólanum okkar, við erum fyrsti framhaldsskólinn á Íslandi til að standa fyrir þessum viðburði!

Á Styrkleikum VMA og Þórdunu sýnum við þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning okkar og styrk. Nemendur og starfsfólk vinna saman í að halda boðhlaupskefli á hreyfingu í 12 tíma, frá kl. 8.30 til kl. 20.30, með því að ganga með keflið hring í kringum skólann - það krefst þrautseigju og samstöðu að halda keflinu gangandi í 12 klukkustundir. Skólameistari sér um að setja Styrkleikana í Gryfjunni klukkan 8.30 og deginum verður svo lokað þar líka. Gaman væri að sjá sem flesta í Gryfjunni og allir að mæta í fjólubláu þennan dag því það er litur styrkleikanna.

Hver og einn fer á sínum hraða í göngunni og í sameiningu sér hópurinn um að klára verkefnið. Sett verður upp skráningarskjal þar sem hægt verður að skrá sig í göngu með keflið en gengið verður hring í kringum skólann og skipti á keflinu verða við A innganginn á skólanum. Það er bæði hægt að labba einn með keflið, í pari, hóp, afturábak á höndum eða hvernig sem er. Skólameistari hefur gefið leyfi fyrir því að lífsleiknihópar taki sig saman og gangi með keflið í stað kennslustundarinnar. Og svo hvetjum við aðra sem kenna þennan dag að taka sér tíma frá kennslu og fara með hópinn sinn eða leyfa einstaklingum sem vilja fá sér göngu að gera það. Þórduna sér um skráninguna  og verða settir upp QR kóðar um skólann þar sem fólk getur séð hvenær er hægt að skrá sig.

Aðalmarkmið verkefnisins er að vekja athygli á mikilvægu málefni og að sameina krafta okkar fyrir góðan málstað. Styrkleikarnir byggjast á samstöðu, samveru og samhug nemenda og starfsfólks sem vilja sýna stuðning, virðingu og samkennd með þeim sem hafa orðið fyrir áhrifum krabbameins.

Í tengslum við Styrkleikana verður einnig áheitasöfnun þar sem safnað er fé fyrir Krabbameinsfélagið. Það fé sem safnast nýtist til krabbameinsrannsókna ásamt því að veita þeim sama hafa greinst með krabbamein ráðgjöf og þjónustu. Þjónusta Krabbameinsfélagsins er öllum að kostnaðarlausu og gerir verkefni eins og Styrkleikana meðal annars félaginu kleift að halda úti þjónustunni.

Einnig verður ýmislegt um að vera í Gryfjunni þennan dag. Fyrir utan gönguna með keflið verður einnig hægt að heita á einstaklinga eða hópa - og ef ákveðin upphæð næst, lofum við skemmtilegum uppátækjum! T.d. munu Inda og Óli taka La det swinge í Gryfjunni í hádeginu ef það næst að safna 200 þús kr. - Sturlað! Nemendafélagið stendur svo fyrir pingpongumóti seinnipartinn og boðið verður upp á pizzur og gos í boði Greifans og Ölgerðarinnar um kvöldið fyrir þá sem standa vaktina.

Meðfylgjandi er hlekkur á heimasíðu áheitasöfnunarinnar:

https://safna.krabb.is/project/styrkleikar-vma-og-nemendafelagsins-thorduna

Hlökkum til að njóta dagsins með ykkur!