Fara í efni

Stundatöflur nemenda og töflubreytingar í INNU

Stundatöflur nemenda verða birtar miðvikudaginn 6.janúar og um leið verður opnað fyrir óskir um töflubreytingar í INNU. Töflubreytingar fara fram í gegnum Innu og standa frá miðvikudeginum 6.  janúar og til hádegis miðvikudaginn 13. janúar. Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel leiðbeiningar um töflubreytingar sem eru á heimasíðu skólans.

Nemendur, þar með talin útskriftarefni, hafi samband við sinn sviðsstjóra eða námsráðgjafa í gegnum tölvupóst eða síma 4640300, ef ráðgjafar er þörf.

 

Eftirfarandi þarf að hafa í huga:

 

- beiðnir um töflubreytingar sem byggðar eru á vina- eða kennaranótum verða líkast til ekki samþykktar nema mjög góðar ástæður liggi að baki.

- ef nemandi er með 36 tíma í töflu eða meira, er ólíklegt að beiðni um viðbót í töflu verði samþykkt.

- nemendur verða að fylgjast með stundatöflunum sínum í INNU til þess að sjá hvort breytingar hafa verið samþykktar eða ekki.

- Rafrænar beiðnir eru afgreiddar daglega.

 

Stokkakerfi

Leiðbeiningar

Tímatafla

 

Sviðsstjórar:

Baldvin Ringsted, sviðsstjóri verk- og fjarnáms (baldvin@vma.is)

Ómar Kristinsson, sviðsstjóri stúdentsprófsbrauta og sjúkraliðabrautar (omar@vma.is)

Harpa Jörundardóttir, sviðsstjóri brautabrúar og starfsbrautar (harpajora@vma.is)

Námsráðgjafar:

Helga Júlíusdóttir (helgajul@vma.is)

Svava Hrönn Magnúsdóttir (svava@vma.is)