Fara í efni

Stundatöfluafhending

Starfsfólk VMA býður nemendur og starfsfólk velkomið til starfa á nýju ári með óskum um gleðilegt ár og gott gengi í námi og starfi á nýju ári.Afhending stundataflna fyrir vorönn 2014 verður þriðjudaginn 7. janúar og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu 8. janúar kl. 8:15.

Starfsfólk VMA býður nemendur og starfsfólk velkomið til starfa á nýju ári með óskum um gleðilegt ár og gott gengi í námi og starfi á nýju ári. 

Afhending stundataflna fyrir vorönn 2014 verður þriðjudaginn 7. janúar og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu 8. janúar kl. 8:15.

Stundatöflur verða afhentar 7. janúar í Gryfjunni – aðalsal skólans sem hér segir:

Kl. 09:30 – 10:00 Útskriftanemar

Kl. 10:00 – 11:00 Félagsfræðabraut, náttúrufræðibraut og vélstjórnarbraut

Kl. 11:00 – 12:00 Aðrar brautir

Kl. 13:00 – 14:00 Nýir nemendur

Kl. 14:00 verður upplýsingafundur með nýjum og endurinnrituðum nemendum í M-01.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 8. janúar kl. 8:15