Fara í efni

Stórglæsileg árshátíð!

Það var ósvikin gleði á árshátíð VMA.
Það var ósvikin gleði á árshátíð VMA.
Árshátíð VMA var haldin með miklum glæsibrag í Íþróttahöllinni á Akureyri sl. föstudagskvöld og er óhætt að segja að hún hafi tekist hið besta og var umgjörð hátíðarinnar einstaklega glæisleg.

Árshátíð VMA var haldin með miklum glæsibrag í Íþróttahöllinni á Akureyri sl. föstudagskvöld og er óhætt að segja að hún hafi tekist hið besta og var umgjörð hátíðarinnar einstaklega glæsileg.

Það fór ekkert á milli mála að þeir sem unnu baki brotnu að undirbúningi árshátíðarinnar höfðu lagt gríðarlega mikið á sig og var útkoman stórglæsileg. Er ástæða til þess að þakka stjórn Þórdunu og öllum öðrum sem lögðu hönd á plóg við skipulagningu árshátíðarinnar fyrir frábært starf.

Að sjálfsögðu var árshátíðin mynduð í bak og fyrir og eiga þeir Hilmar Friðjónsson, Helgi Freyr Sævarsson og Atli Ágúst Stefánsson heiðurinn af því. Hér má sjá ýmsar myndir sem þeir félagarnir tóku á hátíðinni. Myndir segja meira en mörg orð.

Hér eru fyrst myndir úr salnum, þjónusturýminu og græna herberginu.

Hér eru nokkrar myndir af skemmtilegu parkour-atriði.

Hér eru myndir af dúndrandi stuði á dansgólfinu.

Og síðan var tekinn fjöldi mynda í stúdíói VMA. Hér er annað myndaalbúmið og hér hitt.