Stöðupróf í filippseysku, víetnömsku, rússnesku, rúmensku og búlgörsku
24.03.2026
Stöðupróf í filippseysku, víetnömsku, rússnesku, rúmensku og búlgörsku verða haldin föstudaginn 17. apríl 2026 kl. 14:00. Próftakan kostar 18000 kr. Próftakar þurfa að millifæra prófgjaldið inn á reikning 0323-26-109, kt. 460269-3509 og skrifa kennitölu próftaka í skýringu. Greiða þarf gjaldið fyrir kl. 12:00, 16. apríl og muna eftir að senda kvittun á mh@mh.is. Einnig þarf að mæta með kvittunina í prófið ásamt skilríkjum.
Skráningareyðublað og allar upplýsingar má finna hér: https://www.mh.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-stoduprof-i-erlendum-tungumalum