Fara í efni

Skrímsli, vélmenni og risavaxnar byggingar

Donat Prekorogja, myndlistarmaður.
Donat Prekorogja, myndlistarmaður.

Í dag, þriðjudaginn 19. mars kl. 17:00-17.40, heldur svissneski myndlistarmaðurinn Donat Prekorogja Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Smiling Pebbles. Fyrirlesturinn verður á ensku og er aðgangur ókeypis.

Í fyrirlestri sínum mun Donat ræða um listiðkun sína og persónu út frá listsköpun í fortíð, nútíð og framtíð. „Með því að uppgötva og sjá andlit, dýr, lítil skrímsli og vélmenni í formum risavaxinna bygginga létti, fyrir mér, yfir steinsteypuveggjunum og ferningunum,“ segir Prekorogja. „Steinninn lifnaði allt í einu við og harkan minnkaði. Þannig hóf ég að vinna með einföld form – ferninga, ferhyrninga, hringi og hálfhringi. Hugmyndin um að blása lífi og takti í þessi stífu og ströngu form heillaði mig.“

Donat Prekorogja fæddist í Sviss, en er af albönskum uppruna. Hann lauk BA námi í myndlist við HEAD Genève 2023, þar sem hann vann með innsetningar og skúlptúr. Eftir útskrift hefur hann verið virkur í sýningarhaldi í Sviss og dvelur um þessar mundir í gestavinnustofu Gilfélagsins.

Fyrirlestur Donats er í fyrirlestraröðinni Þriðjudagsfyrirlestrar sem er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins á Akureyri.