Fara í efni

Skipulag kennslu þriðjudaginn 3. nóvember

Skipulag kennslu út frá nýrri reglugerð tekur okkur lengri tíma en við áttum von á. Í ljósi þess hafa stjórnendur tekið þá ákvörðun að skólastarf verði með eftirfarandi hætti á morgun, þriðjudaginn 3. nóvember: 

  • Áfangar sem þegar eru komnir í fjarkennslu halda sínu striki samkvæmt skipulagi og verða þannig a.m.k. til 17. nóvember.
  • Ekkert staðnám verður á morgun, þriðjudaginn 3. nóvember, í verklegum greinum, listnámi og á starfsbraut.
  • Staðnám í rafiðngreinum (grunndeild rafiðna, rafvirkjun og rafeindavirkjun) fellur alveg niður út þessa viku. Það eru sex kennarar og tæplega fjörutíu nemendur í rafiðn í sóttkví. 
  • Í áföngum sem hafa verið í staðkennslu, munu kennarar senda nemendum tölvupóst með upplýsingum um hvort það verði tími í gegnum fjarkennslu á morgun eða alveg kennslufall. Fylgist vel með tölvupósti ykkar  kl. 8 í fyrramálið eða samkvæmt stundatöflu ykkar.
  • Skrifstofa skólans verður opin á morgun.
  • Einungis verður hægt að koma inn í skólann um inngang að austan (þar sem styttan af Þór er).
  • Bókasafnið verður lokað á morgun.
  • Stoðþjónusta er óbreytt en verður með rafrænum hætti. Nemendur eru hvattir til að nýta sér stoðþjónustuna og fá ráðleggingar og upplýsingar. 
  • Hægt er að hafa samband við sviðsstjóra og náms- og starfsráðgjafa með tölvupósti (sjá á heimasíðu).
  • Búið er að taka þá ákvörðun að engin skrifleg lokapróf í húsnæði VMA muni fara fram í desember. Engu að síður geta verið lokapróf í áföngum í gegnum kennsluvefi og munu kennarar tilkynna nemendum á næstunni hvort og hvernig námsmat áfanga breytist.

Það kemur svo í ljós vonandi seinnipartinn á morgun, þriðjudag, hvernig skólahaldi verður háttað út önnina. Áhersla menntamálaráðherra og okkar í VMA er sú að geta haldið úti sem mestu skólastarfi í staðkennslu, en á sama tíma gert allt sem í okkar valdi stendur til að hafa skólastarfið með sem öruggustum hætti.

Allar okkar ákvarðanir eru teknar með hliðsjón af námi og framtíð nemenda. Nemendur VMA eiga miklar þakkir skilið fyrir jákvæðni og að takast á við námið sitt með gjörbreyttum hætti. Þá hafa nemendur tekið virkan þátt í sóttvörnum og farið eftir þeim reglum sem settar hafa verið. Höldum áfram á þessari leið saman.


Sigríður Huld
Skólameistari VMA.

-English-

At this time it is still uncertain what impact a new regulation will have on our on-site classes.

Distance learning classes will be as planed. 
There will be no on-site classes tomorrow (Tuesday 3rd of November) and no classes at Starfsbraut.

There will be no on-site classes at rafiðn (Grunndeild rafiðna, rafvirkjun and rafeindavirkjun) through out this week due to that six teachers and about 40 rafiðn students  are in a quarantine. 

Teachers will send e-mail to their students tomorrow. We thus ask students and their guardians to check their e-mail/Inna tomorrow morning.
What will be after tomorrow is still uncertain but hopefully we can keep on with our on-site classes but it will probable be in a different way.

There are really good information about covid at the covid.is website in many languages e.g. Polski, Francais, Espanol and Arabic.